Innlent

Engin móttaka hjá borginni

hanna birna kristjánsdóttir
hanna birna kristjánsdóttir

„Þau voru fyrst og fremst að kynna okkur fyrirætlanir sínar og óska eftir skrifstofuhúsnæði. Hugmyndin um móttöku kom upp, en hefðum og venjum samkvæmt varð ekki úr henni þar sem um var að ræða gest í einkaheimsókn,“ segir Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri.

Hún segir aðila sem stóðu að heimsókn Dalai Lama hafa vakið máls á því hvort mögulegt væri að halda trúarleiðtoganum formlega móttöku á vegum borgarinnar. Það hafi verið gert í aðdraganda heimsóknarinnar.

„Í þessu tilviki var hvorki um að ræða opinbera heimsókn né formlega heimsókn til Reykjavíkur. Þess vegna varð ekkert af formlegri móttöku,“ segir Hanna Birna.- kg




Fleiri fréttir

Sjá meira


×