Sendiherrann kallaður heim 3. júní 2009 05:45
Sendiherra Kína á Íslandi, Zhang Keyuan, hefur verið kallaður heim. Ekki fengust skýringar á því athæfi kínverskra stjórnvalda í gærkvöldi en sendiherrann hefur starfað hér í tæp tvö ár. Sendiherrann gekk í gærmorgun á fund ráðuneytisstjóra utanríkisráðuneytisins og kom á framfæri óánægju kínverskra stjórnvalda og sendiráðsins með fundi íslenskra ráðamanna með Dalai Lama, leiðtoga Tíbeta. Koma Dalai Lama til landsins hefur vakið spennu og óróa innan íslenska stjórnkerfisins. Kínverjar mótmæla jafnan harðlega ef erlendir ráðamenn hitta Dalai Lama að máli. Heimildir Fréttablaðsins herma að stjórnvöld hafi í raun verið hálf ráðalaus vegna komu hans og vart vitað í hvorn fótinn þau ættu að stíga. Einn heimildarmaður orðaði það svo að komur erlendra gesta væru alla jafna þægilegri við að eiga. Fjórir íslenskir ráðherrar hittu Dalai Lama í gær og fyrradag:Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra og Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra á stuttum fundi í gær og Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra og Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra við trúarsamkomu í Hallgrímskirkju á mánudag. Þá hitti hann dágóðan hóp alþingismanna í gær, meðal annars forseta Alþingis og nefndarmenn í utanríkismálanefnd. Hvorki forsætis- né utanríkisráðherra hittu Dalai Lama. Utanríkisráðherra er á Möltu en ekki fengust skýringar á hvers vegna forsætisráðherra hitti hann ekki. Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra sagði eftir ríkisstjórnarfund í gærmorgun að forsætisráðherra væri úti á landi. Sjálfur taldi hann Dalai Lama eiga við sig lítið erindi enda hefði hann varla áhuga á íslenskum efnahagsmálum. Ólafur Ragnar Grímsson er viðstaddur Smáþjóðaleikana sem settir voru á Kýpur á mánudagskvöld. Hann hélt utan á sunnudag - sama dag og Dalai Lama kom til landsins - en daginn áður átti hann fund með fyrrverandi sendiherra Kína á Íslandi. Samkvæmt upplýsingum forsetaritara réð tilviljun réði því að forsetinn fundaði með sendiherranum fyrrverandi um það bil sem Dalai Lama kom til landsins og var ekki rætt um málefni Tíbets á fundi þeirra. - bþs /
Mest lesið „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Fleiri fréttir Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi Sjá meira