Innlent

Hefur ekki séð hótunarbréfið

Viðskiptanefnd situr nú á fundi, en Álfheiður Ingadóttir, formaður nefndarinnar, hafði óskað eftir afriti af bréfi þýskra stjórnvalda til skilanefndar Kaupþings. Í bréfinu var ýjað að því að ef þýskir Edge innistæðueigendur fengju ekki greitt hið snarasta myndu þýsk stjórnvöld beita sér í viðræðum Íslendinga við Evrópusambandið og Alþjóða gjaldeyrissjóðinn.

Fréttastofa náði tali af Álfheiði rétt fyrir fundinn en þá hafði hún ekki séð bréfið. Hún hefur gagnrýnt að nefndinni hafi ekki verið gerð grein fyrir bréfinu áður en hún samþykkti lagabreytingu sem heimilar að innistæðueigendunum verði greitt fyrr en ella. Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra, hefur sagt að hans mat sé að ekkert í bréfinu mætti túlka sem hótun í garð Íslendinga, aðeins væri verið að lýsa áhyggjum af því hversu hægt gengi að greiða út innistæðurnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×