Innlent

Stál í stál í Karphúsinu

Andri Ólafsson skrifar
Fulltrúar fimm landssambanda ASÍ sitja nú á fundi í Karphúsinu og fara yfir stöðu mála í viðræðum Alþýðusambandsins og Samtaka atvinnulífsins. Mikil óvissu ríkir um framgang þeirra viðræðna en fulltrúar ASÍ og SA hafa ekki hist formlega síðan fyrir helgi.

Síðan fulltrúar ASÍ og SA funduðu síðast á föstudaginn hafa aðildarfélög ASÍ hist og borið saman bækur sínar. Niðurstöðurnar eru til umræðu í þessum töluðu orðum á fundi fimm landssambanda ASÍ í Karphúsinu.

Í viðræðunum er tekist á um tímasetningar launahækkana í gildandi kjarasamningi. SA hefur lagt til að taxtahækkunum, sem koma áttu til framkvæmda 1. júlí verði skipt í tvennt þannig að helmingur komi til framkvæmda þá og helmingur í nóvember.

Jafnframt lögðu atvinnurekendur til að launahækkunum sem koma ættu til framkvæmda 1. janúar á næsta ári verði frestað til 1. september á því ári.

Á meðal aðildarfélaga ASÍ er lítill vilji til að fresta launahækkunum frekar en orðið er og því hefur tillögum SA verið hafnað. Þannig hefur málið staðið alla hvítasunnuhelgina.

Sem fyrr segir funda fulltrúar landssambanda ASÍ í Karphúsinu nú í hádeginu. Þar verða að öllum líkindum lagðar línu um hvort ganga eigi að tilboði SA eða hreinlega slíta viðræðunum. Þá hefur sá möguleiki einnig verið nefndur að landssamböndin semji hreinlega sitt í hvoru lagi. Það er að segja að sum samböndin gætu gengið að tilboði SA á meðan önnur fari í hart.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×