Innlent

Mikil aðsókn í sumarlán LÍN

Námsmenn Mikil aðsókn er í sumarlán LÍN. Um tvö þúsund manns ætla að stunda nám í háskólum landsins í sumar. Fréttablaðið/Heiða
Námsmenn Mikil aðsókn er í sumarlán LÍN. Um tvö þúsund manns ætla að stunda nám í háskólum landsins í sumar. Fréttablaðið/Heiða

Um 850 manns hafa sótt um sumarlán hjá LÍN, saman­borið við 550 manns í heild í fyrra. Frestur til að skila inn umsókn um sumarlán rennur út 15. ágúst og gerir framkvæmdastjóri LÍN, Guðrún Ragnars­dóttir, ráð fyrir að umsóknum muni fjölga talsvert. Um tvö þúsund manns hafa skráð sig í sumar­nám í háskólum landsins.

Um þessar mundir er nú unnið að því innan Lánasjóðsins að endur­skoða úthlutunarreglur fyrir næsta vetur, auk þess að lækka tekjutengdar afborganir fyrir haustið 2009.

- hhs




Fleiri fréttir

Sjá meira


×