Upplifun að hitta Dalai Lama 3. júní 2009 06:15 heimsókn á alþingi Dalai Lama heimsótti meðal annars Alþingi í gær í boði Ástu R. Jóhannesdóttur þingforseta og utanríkismálanefndar þingsins.fréttablaðið/vilhelm „
Það er alltaf upplifun að hitta jafn merka menn og Dalai Lama er. Ég hef ekki kafað djúpt ofan í málefni Tíbets en þessi fundur vakti áhuga minn enn frekar á þeim málum,“ segir Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra, sem í gær átti stuttan fund með Dalai Lama, trúarleiðtoga Tíbeta. Dalai Lama gerði víðreist um borgina í gær og var hvarvetna vel tekið. Löng biðröð myndaðist fyrir framan Laugardalshöllina þar sem trúarleiðtoginn hélt fyrirlestur fyrir fullu húsi. Einnig var hvert sæti skipað í hátíðarsal Háskóla Íslands þar sem hann flutti erindi. Þá hitti Dalai Lama Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur, forseta Alþingis, í þinghúsinu og fundaði með þingmönnum utanríkismálanefndar. Katrín fundaði með Dalai Lama ásamt Ögmundi Jónassyni, heilbrigðisráðherra, Birgittu Jónsdóttur, þingflokksformanni Borgarahreyfingarinnar og Björgvini G. Sigurðssyni, þingflokksformanni Samfylkingarinnar. Að sögn Katrínar stóð fundurinn heldur stutt yfir, rúmlega tuttugu mínútur, enda dagskrá Dalai Lama þéttskipuð í stuttri heimsókn hingað til lands. „Við ræddum aðallega um deilur útlagastjórnarinnar í Tíbet við kínversk stjórnvöld.“- kg
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Erlent Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Erlent CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Innlent „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Innlent Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Erlent Fleiri fréttir Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Æfir kennarar og varað við verðstýringu Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Margir sátu hjá þegar launin voru hækkuð Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri „Nú hef ég auðvitað ekkert á móti fólki frá Nígeríu“ Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Rannsóknin á lokametrunum Fjórir landsréttardómarar vilja taka skrefið í Hæstarétt Forsetar Íslands og Slóveníu ræða leiðtogahlutverk í breyttum heimi Segir forsætisráðuneytið misnotað í þágu sveitarstjórnarkosninga Sjálfsmark með „sjúklega samfylkingarlegu“ kjötvörubanni Framkoman laði ekki lækna að Landspítalanum Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Eimskip líta smyglið mjög alvarlegum augum „Já, ég er dálítið reiður“ Sjá meira