Innlent

Veifaði sveðju og kveikti í teppi

Karlmaður á fertugsaldri var handtekinn í nótt í fjölbýlishúsi í Breiðholti. Maðurinn var vopnaður sveðju og ógnaði fólki í stigagangi fjölbýlishúss. Hann er einnig grunaður um að hafa lagt eld að gólfteppi í stigaganginum. Eldurinn var þó slökktur fljótt og segir lögregla að sökum þess hafi lítil hætta skapast. Lögregla var kölluð á staðinn og afvopnaði manninn átakalaust og gistir hann nú fangageymslur. Hann mun hafa verið undir áhrifum áfengis eða fíkniefna og verður hann yfirheyrður þegar líða tekur á daginn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×