Innlent

Tillaga um lægri hámarkshraða svæfð í nefnd

Ólafur F. Magnússon.
Ólafur F. Magnússon. Mynd/GVA
Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi F-listans og óháðra, segir að vegna hræðslu við að taka taka af skarið hafi meirihluti borgarfulltrúa sameinast um að svæfa tillögu sína um lækkun hámarkshraða um tilteknar götur í borginni í nefnd.

Ólafur vill að 30 kílómetra hámarkshraði verði á gatnamótum Hringbrautar og Sæmundargötu allt vestur að hringtorginu við Ánanaust. Þá vill hann að Hofsvallagata og Háaleitisbraut verði öll gerð að 30 kílómetra svæði auk Bústaðavegarmilli Sæbrautar og Háaleitisbrautar. „Ég ætla ekki að bíða eftir næsta slysi,“ segir borgarfulltrúinn.

Á fundi borgarstjórnar var samþykkt með 14 af 15 atkvæðum að vísa tillögu Ólafs til umhverfis- og samgönguráðs borgarinnar. Ólafur segir að sú ákvörðun valdi miklum vonbrigðum.

Borgarfulltrúinn bendir á að nýlega hafi orðið banaslys Hringbraut þrátt fyrir að að íbúar við götuna hafi kallað eftir aðgerðum undanfarin ár.

Ólafur segist hafa barist fyrir bættu umferðaröryggi um árabil og hann muni halda því áfram. Hann ætli ekki að bíða eftir næsta umferðarslysi heldur berjast fyrir tillögu sinni innan borgarkerfisins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×