Innlent

Bolli aftur ráðuneytisstjóri

Bolli Þór Bollason árið 2001 þegar hann gegndi embætti ráðuneytisstjóra í fjármálaráðuneytinu.
Bolli Þór Bollason árið 2001 þegar hann gegndi embætti ráðuneytisstjóra í fjármálaráðuneytinu.

Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra, skipaði í dag Bolla Þór Bollason, hagfræðing, ráðuneytisstjóra í félags- og tryggingamálaráðuneytinu. Þetta kemur fram á heimasíðu ráðuneytisins í dag.

Bolli Þór var áður ráðuneytisstjóri í forsætisráðuneytinu og er skipaður ráðuneytisstjóri í félags- og tryggingamálaráðuneytinu með vísan til 36. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins þar sem kveðið er á um flutning embættismanna ríkisins milli starfa segir á heimasíðu ráðuneytisins.

Bolli, sem hefur meðal annars fengið fálkaorðuna fyrir störf sín, var sendur í leyfi þegar Jóhanna Sigurðardóttir tók við forsætisráðuneytinu í vetur eftir búsaáhaldabyltinguna.

Bolli Þór Bollason er fæddur í Reykjavík árið 1947. Hann lauk námi í þjóðhagfræði við háskólana í Manchester og Kaupmannahöfn. Hann var hagfræðingur á Þjóðhagsstofnun frá árinu 1975 en var skipaður skrifstofustjóri efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytisins árið 1987.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×