Helstu ráðamenn fjarri Dalai Lama 3. júní 2009 04:15 Í þinghúsinu Dalai Lama heimsótti meðal annars Alþingi í gær í boði Ástu R. Jóhannesdóttur þingforseta og utanríkismálanefndar þingsins.Fréttablaðið/vilhelm
Sendiherra Kína á Íslandi lýsti í gær óánægju ríkisstjórnar sinnar með fundi íslenskra ráðamanna með Dalai Lama, leiðtoga Tíbeta. Fjórir ráðherrar og rúmlega tíu alþingismenn hittu Dalai Lama í gær og fyrradag. Áratuga deilur Kínverja og Tíbeta um yfirráð yfir Tíbet hafa verið harkalegar og á stundum blóðugar. Dalai Lama er talsmaður þess að Tíbetar fái sjálfsstjórn en kínversk stjórnvöld vilja fara með full yfirráð yfir Tíbet. Samskipti þjóðanna eru afar viðkvæm og andæfa kínversk stjórnvöld kröftuglega í hvert sinn sem Dalai Lama hittir erlenda þjóðarleiðtoga eða ráðamenn. Sú staðreynd að hvorki forsætis- né utanríkisráðherra né heldur forseti Íslands hafi séð sér fært að hitta Dalai Lama í Íslandsheimsókninni hefur vakið athygli. „Það er nefnilega neyðarlegt að æðstu embættismenn þjóðarinnar komi sér hjá því að hitta friðarhöfðingjann,“ skrifar Birgitta Jónsdóttir, alþingismaður og formaður Vina Tíbets, til dæmis á vef sinn. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, fundaði með fyrrverandi sendiherra Kína á Íslandi á laugardag, degi fyrir komu Dalai Lama til landsins. Tilviljun réði því að fundinn bar upp svo skömmu fyrir komu tíbetska leiðtogans. „Það hittist svona á,“ segir Örnólfur Thorsson forsetaritari. Fundurinn hafi ekki tengst komu Dalai Lama til Íslands og málefni Tíbet ekki komið til umræðu. Á heimasíðu forsetaembættisins segir að efni fundarins hafi verið „margvísleg tækifæri til að auka samvinnu Íslands og Kína á sviðum menningar, vísinda og viðskipta“. Sendiherrann fyrrverandi, Wang Ronghua, gegndi hér störfum árin 1998-2002. Hann flutti fyrirlestur í Háskóla Íslands á fimmtudag um söguleg kínversk gagnasöfn. Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins starfar sendiherrann fyrrverandi nú fyrir írskt markaðsrannsóknafyrirtæki í Kína. Ólafur Ragnar fór á sunnudag til Kýpur til að vera við Smáþjóðaleikana sem hófust með setningarathöfn á mánudag. Viðstaddir voru leiðtogar allra þátttökuríkja. Langt er um liðið síðan Ólafur Ragnar þekktist boð Íþrótta- og Ólympíusambandsins um að dvelja með íslenska íþróttafólkinu á Kýpur. Ekki kom til álita að endurskoða þá ákvörðun. Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra er á Möltu þar sem hann ræðir við þarlenda ráðherra um veru ríkisins í Evrópusambandinu. Fram kom í gær að Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra væri úti á landi fyrri part dags og gæti því ekki hitt Dalai Lama. Seinni partinn og fram á kvöld sat hún stífa fundi. Upplýst var opinberlega um fyrirhugaða komu Dalai Lama hingað til lands 9. febrúar. bjorn@frettabladid.is
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Erlent Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Erlent CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Innlent „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Innlent Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Erlent Fleiri fréttir Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Æfir kennarar og varað við verðstýringu Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Margir sátu hjá þegar launin voru hækkuð Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri „Nú hef ég auðvitað ekkert á móti fólki frá Nígeríu“ Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Rannsóknin á lokametrunum Fjórir landsréttardómarar vilja taka skrefið í Hæstarétt Forsetar Íslands og Slóveníu ræða leiðtogahlutverk í breyttum heimi Segir forsætisráðuneytið misnotað í þágu sveitarstjórnarkosninga Sjálfsmark með „sjúklega samfylkingarlegu“ kjötvörubanni Framkoman laði ekki lækna að Landspítalanum Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Eimskip líta smyglið mjög alvarlegum augum „Já, ég er dálítið reiður“ Sjá meira