Innlent

Staða heimilanna rædd

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, verður til andsvara í utandagskrár umræðu um stöðu heimilanna á Alþingi í dag. Málshefjandi er Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokks.

Stjórnarandstaðan hefur gagnrýnt ríkisstjórnina fyrir aðgerðarleysi gagnvart heimilum og fyrirtækjum í landinu. Meðal annars hefur verið bent á að nýleg hækkun skatta á bensín og áfengi muni auka skuldir heimilanna um rúma sjö millljarða króna vegna vísitöluáhrifa.

Umræðan hefst klukkan þrjú og stendur í tæpa klukkustund.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×