Innlent

Fjallað sameiginlega um tillögurnar

Frá Alþingi Tillögur ríkisstjórnarinnar og Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks eru til sameiginlegrar meðferðar utanríkismálanefndar.fréttablaðið/gva
Frá Alþingi Tillögur ríkisstjórnarinnar og Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks eru til sameiginlegrar meðferðar utanríkismálanefndar.fréttablaðið/gva

ESB-tillögurnar tvær, ríkisstjórnarinnar annars vegar og Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks hins vegar, verða til sameiginlegrar meðferðar í utanríkismálanefnd Alþingis.

Nefndarmenn ræddu verklag á fundi í gær og ákváðu að kalla eftir umsögnum 98 aðila. Fer þar mest fyrir margvíslegum félögum, samtökum, stofnunum og háskólum. Umsagnarfrestur er tvær vikur.

„Við ákváðum að vinna þessar tillögur saman," segir Árni Þór Sigurðsson, formaður utanríkismálanefndar. „Ætlunin er að ræða málið almennt í stað þess að hengja okkur í texta hvorrar tillögu um sig," segir hann.

Stíf fundahöld eru áformuð í nefndinni næstu vikurnar en auk þess að viðra eigin sjónarmið munu nefndarmenn að líkindum hlýða á munnlega afstöðu fjölmargra umsagnaraðila enda vaninn að menn vilji fylgja umsögnum sínum eftir með þeim hætti.

Árni hefur ekki sett nefndarstörfunum nákvæman tímaramma, aðeins áætlun út mánuðinn. Verði vinnunni ekki lokið þá verði einfaldlega haldið áfram.

Þá hefur upplýsinga um umsóknarferli Noregs og Svíþjóðar frá 1993 verið óskað fyrir utanríkismálanefnd að styðjast við í störfum sínum.- bþs






Fleiri fréttir

Sjá meira


×