Vilja bílprófsaldur í átján ár í áföngum 21. júlí 2009 05:00 Samræma hraða Nefnd samgönguráðherra leggur meðal annars til að hámarkshraði á þjóðvegum landsins verði 90 kílómetrar á klukkustund fyrir öll ökutæki. Í dag er hámarkshraðinn 80 kílómetrar á klukkustund hjá stórum bílum og bílum með tengivagn. Fréttablaðið/Stefán
Bílprófsaldurinn verður hækkaður í átján ár, og leyfilegt áfengismagn í blóði ökumanna lækkar um meira en helming nái breytingar sem nefnd samgönguráðherra vill gera á umferðarlögum fram að ganga. Kristján L. Möller samgönguráðherra skipaði nefnd til að endurskoða umferðarlögin í nóvember 2007, og hefur hún nú skilað tillögum sínum til ráðherra. Tillögurnar eru á formi frumvarps, og geta áhugasamir gert athugasemdir við frumvarpið, sem finna má á vef ráðuneytisins, til 15. september. Eitt af því sem nefndin leggur til er að bílprófsaldurinn verði hækkaður úr sautján árum í átján. Leggur nefndin til að það verði gert í áföngum. Árið 2012 verði ökumenn að hafa náð sautján ára og þriggja mánaða aldri, árið 2013 sautján ára og sex mánaða, árið 2014 sautján ára og níu mánaða aldri, og að átján ára aldurstakmarkið verði komið að fullu til framkvæmda árið 2015. Í greinargerð með frumvarpsdrögum nefndarinnar segir að slysatíðni þeirra sem taki bílprófið sautján ára sé talsvert hærri en hjá þeim sem taki prófið átján ára. Búast megi við því að þeir sem taki prófið átján ára valdi sex prósentum færri slysum en þeir sem taki prófið sautján ára. Þá er einnig bent á að einstaklingar verði lögráða við átján ára aldur. Núverandi fyrirkomulag valdi vanda þegar ólögráða ökumenn lendi í slysi sem valdi þeim eða öðrum fjárhagslegu tjóni. „Auðvitað eru skiptar skoðanir innan okkar stéttar," segir Jón Haukur Edwald, formaður Ökukennarafélags Íslands, sem átti sæti í nefnd samgönguráðherra. „Við stöndum ekki á móti þessu ef þetta stendur til bóta," segir Jón Haukur. Hann segir mikilvægt að breytingin verði gerð í fjórum áföngum. Verði bílprófsaldurinn hækkaður um eitt ár í einu vetfangi myndi það „ganga af stéttinni dauðri". Almenna reglan í Evrópusambandinu er sú að bílprófsaldurinn sé átján ár, segir Kjartan Þórðarson, sérfræðingur hjá Umferðarstofu. Heimildir séu fyrir því að lækka bílprófsaldurinn í sautján ár, en sér vitanlega hafi aðeins Bretland, Írland, Pólland og Austurríki, auk Íslands, leyft sautján ára fólki að taka bílprófið. Kjartan segir að umræða hafi verið um að hækka bílprófsaldurinn í átján ár í Bretlandi fyrir rúmum áratug. Niðurstaðan hafi verið sú að gera það ekki. Rannsóknir hafi sýnt að nýir átján ára ökumenn hafi verið alveg jafn reynslulausir og nýir sautján ára ökumenn. Því hafi verið hætt við að hækka bílprófsaldurinn.brjann@frettabladid.is
Mest lesið Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Innlent Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Innlent „Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Innlent Landlæknir hafi í raun sakfellt Skúla Tómas Innlent Óttast um fleiri kindur eftir að tík týndist Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Fleiri fréttir Mikilvægt að draga lærdóm af gerð gatnamótanna „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Segir málið verða að hafa afleiðingar fyrir Skúla Tómas Vestmannaeyjabær áfrýjar til Landsréttar Segir Dag plata með úreltri skýrslu Leiðrétting fréttar: Það sem Þorgerður sagði í raun Íslenskt sumarveður verðmæt auðlind Vara við hættulegum aðstæðum við Sólheimajökul Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Hálfs árs hrakfallasögu Herjólfs virðist lokið „Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Undirbúa sig fyrir töluvert fleiri gesti á Einni með öllu Bakkakotsvelli lokað vegna rigninga: Grjótharðir golfarar láta í minnipokann Fimmtán ár frá hryðjuverkunum í Útey og Ósló Landlæknir hafi í raun sakfellt Skúla Tómas Óttast um fleiri kindur eftir að tík týndist Úrskurður sagður skapa hættulegt fordæmi og fimmtán ár frá atburðunum í Útey Hamingjuóskum rignir yfir Skúla Tómas: „Vanhugsað strax frá upphafi“ Opna senn fyrir atkvæðagreiðslu utan kjörfundar Bandero innan lögsögunnar á ný Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Aukið aðgengi að áfengi auki neyslu Regnboginn verði málaður aftur en með breyttu sniði „Verið að herja á fólk sem er búið að missa maka“ „Mikilvægast að þetta verði ekki eins og einhver hótelsundlaug á Tenerife“ Bandero stefnir í átt að Íslandi á ný Heimurinn aftur orðinn flóknari en NATO muni aðlagast Mikið fylgistreymi milli Miðflokksins og Sjálfstæðisflokksins Toppurinn þegar 450 manns hlupu á eftir Matt Damon Sjálfstæðisflokkur mælist stærstur Sjá meira