Innlent

Fyrsta skemmtiferðaskipið kemur í dag

Myndin tengist ekki þessari frétt.
Myndin tengist ekki þessari frétt.

Fyrsta skemmtiferðaskipið í ár kemur til Reykjavíkur síðdegis og leggst við Skarfabakka við Sundahöfn. Þetta er rúmlega 40 þúsund tonna skip. Alls er búist við 50 skemmtiferðaskipum í 80 heimsóknum til Reykjavíkur í sumar. Það er álíka fjöldi og í fyrra þótt kreppan bitni á útgerðum þessara skipa. Talsvert hefur verið um gylliboð í svona ferðir í vor, þar sem verið er að reyna að fylla skipin. Þá íhuga ýmsar útgerðir að draga úr hraða skipanna til að spara olíu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×