Umhverfisvænir fatahönnuðir 20. október 2009 06:00 Lovísa Óladóttir Fatahönnunarfélag Íslands tekur þátt í umhverfisráðstefnu sem haldin verður í Kaupmannahöfn í desember. Fréttablaðið/anton „
Með þessu verkefni viljum við gera fólk og hönnuði meðvitaðra um umhverfismál og umhverfisvæna framleiðslu á fatnaði. Fataiðnaðurinn er langt frá því að vera umhverfisvænn auk þess sem fólk er látið vinna við ómannúðlegar aðstæður í fataverksmiðjum víða um heim. Norrænu fatahönnunarfélögin hafa nú tekið saman höndum og ætla að hrinda af stað herferð þar sem hönnuðir og aðrir er hvattir til þess að vera meðvitað um hvaðan flíkur þeirra koma," segir Lovísa Óladóttir, einn stjórnarmeðlimur Fatahönnunarfélags Íslands, en félagið tekur þátt í umhverfisráðstefnu sem haldin verður í Kaupmannahöfn í desember. Fatahönnunarfélagið starfar með öðrum fatahönnunarfélögum á Norðurlöndunum og vinna þau saman að verkefninu sem hefur hlotið heitið Nordic Initiative, Clean and Ethical. „Við höfum komið á laggirnar verkefni sem kallast NICE og einn liður í því verkefni er að tuttugu ungum fatahönnuðum verður boðið að taka þátt í vinnustofu þar sem þeir fá að kynnast náttúrulegum framleiðsluháttum og lýkur vinnunni með tískusýningu og hönnunarkeppni sem haldin verður í tengslum við umhverfisráðstefnuna í Kaupmannahöfn þann 9. desember." Fjórir íslenskir hönnuðir munu taka þátt í verkefninu, Rebekka Jónsdóttir, Mundi, Eygló Lárusdóttir og Ingvar Helgason. „Þetta eru allt ungir og efnilegir hönnuðir sem munu taka þátt í þessu verkefni. Þau eru í miðju hönnunarferlinu þessa dagana og það verður gaman og spennandi að sjá það sem þau gera," segir Lovísa. „Með þessu verkefni viljum við vekja alla til umhugsunar um hvaðan flíkurnar þeirra koma og við viljum sýna hönnuðum hvernig tískufyrirtæki geta skipt sköpum og breytt lífi manna til hins betra með því að vera meðvituð um hvar og hvernig varan þeirra er framleidd." - sm
Mest lesið Hvað er það versta sem þú hefur gert? Gagnrýni Útför Björgvins opin almenningi Lífið Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Lífið Krummi kveður pabba sinn Lífið Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Lífið Einvígi aldarinnar endurtekið Lífið Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Lífið Milljónir í að efla tónleikastaði í miðbænum Tónlist Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Lífið „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Lífið Fleiri fréttir Útför Björgvins opin almenningi Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Einvígi aldarinnar endurtekið Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ „Ég var mjög skrítinn krakki“ Bryndís Líf orðin móðir Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Oddvitaáskorunin: „Big Papa“ uppáhalds gælunafnið Sjá meira