Ragnheiði Clausen aftur hent út af Facebook 22. ágúst 2009 09:45 Ragnheiður Clausen efast um að hún nenni aftur á Facebook eftir að hafa verið hent út í annað sinn.Fréttablaðið/Róbert „
Ég veit ekki hvort það sé Facebook-liðið eða eitthvað fólk sem vill mig burt. Ég hef engar skýringar á þessu og er eiginlega bara þreytt og pirruð. Ég sem hélt að þetta ætti að vera eitthvað gaman,“ segir Ragnheiður Elín Clausen, fyrrum sjónvarpsþula. Henni hefur nú verið hent, aftur, útaf Facebook-vinasamfélaginu án skýringa. Mikla athygli vakti í júní á þessu ári þegar fjölmiðlar greindu frá því að Ragnheiði hefði verið vísa útaf samskiptavefnum Facebook. Fjöldi fólks skráði sig á stuðningssíðu henni til heiðurs og að endingu fékk Ragnheiður gömlu síðuna sína aftur með ákveðnum skilmálum, meðal annars að hún mætti ekki skrifa athugasemdir hjá öðru fólki. Hún brá því á það ráð að stofna nýja síðu, nú undir nafninu Ragnheiður Elín Clausen Hauksdóttir, en þeirri síðu hefur nú verið lokað. „Og það án viðvörunar, það voru einhverjar viðvaranir á gömlu síðunni um að ég væri að gera eitthvað af mér en síðunni var bara lokað þegar ég var að setja inn ljóð um hund og skrifa um tvö hundruð metra hlaupið hans Usuain Bolt,“ segir Ragnheiður sem kveðst ekki hafa stundað neina auglýsingamennsku né áróður heldur hafi hún einmitt gætt orða sinna. Ragnheiður tekur reyndar fram að hún hafi slasast fremur illa á ökla í sumar og þurft að vera rúmliggjandi í smá tíma. Þá hafi hún getað fylgst með hvernig annað fólk notaði Facebook og komist að því að notkun hennar væri ekkert öðruvísi en margra annarra þar inni. Ragnheiður efast um að hún muni snúa aftur til leiks á Facebook. „Ég veit ekki hvort ég nenni þessu eitthvað lengur.“- fgg
Mest lesið Nicole er fyrir norðan Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Fleiri fréttir Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Sjá meira