Lífið

Vann þúsund bjórdósir á Hellu

Kristján var að vonum sáttur með sína níu hundruð bjóra sem ættu að duga honum eitthvað fram eftir ári.Fréttablaðið/Anton
Kristján var að vonum sáttur með sína níu hundruð bjóra sem ættu að duga honum eitthvað fram eftir ári.Fréttablaðið/Anton

Kristján Jónsson sigraði í Bjórreið á Hellu um síðustu helgi.

„Það eru níu hundruð eftir, það má alveg brúka það, halda gott partí eða eitthvað," segir Kristján Jónsson knapi, en hann sigraði í svokallaðri bjórreið sem haldin var á Hellu um síðustu helgi í tengslum við Töðugjöld. Í sigurlaun voru hundrað kassar af Egils Gulli sem gerir um þúsund bjóra, reyndar litlar dósir, en engu að síður töluvert magn af bjór.

Kristján gaf strax um hundrað bjóra frá sér, andstæðingar hans, sem voru sjö talsins, fengu sinn kassann hver og svo fékk mótstjórnin einn kassa. Þannig að allir máttu una glaðir við sitt í leikslok. Kristján hélt síðan að sjálfsögðu upp á sigurinn með því að fá sér nokkra, þannig að nú eru eftir níu bretti, níu hundrað litlar dósir.

Hestur Kristjáns, Bróðir, stóð svo sannarlega undir nafni líkt og segir í Njálu: ber er hver að baki nema sér bróður eigi. „Já, hann stóð sig með stakri prýði, þetta er höfðingi og stendur sig vel í öllu," segir Kristján, stoltur af gæðingnum. Knapinn er reyndar nýbyrjaður í hestum sjálfur eftir smá hlé. „Ég var í þessu þegar ég var krakki, en svo fékk maður bílpróf og fór að sinna öðrum hestöflum. Maður setti það síðan alltaf fyrir sig að það væri of dýrt að byrja en svo komst maður í þá aðstöðu að geta byrjað og þá varð ekki aftur snúið."

Þótt áfengi og hestamennska hafi löngum verið óaðskiljanlegir vinir í gegnum tíðina segir Kristján menninguna hafa breyst til hins betra. „Menn eru nánast alveg hættir að vera fullir á hestbaki. En hestamönnum finnst ekkert leiðinlegt að fá sér í glas, þeir gera þetta bara núna í sitthvoru lagi."- fgg








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.