Innlent

Ökufantur á methraða

Lögreglan á Selfossi gómaði ökufant í gær.
Lögreglan á Selfossi gómaði ökufant í gær.

Ökumaður var stöðvaður á Hellisheiðinni klukkan ellefu í gærkvöldi en hann reyndist aka á tæplega 200 kílómetra hraða. Þegar lögreglan mældi hraða mannsins var hann á 194 kílómetra hraða.

Varðstjóri sagðist ekki muna eftir öðrum ökumanni sem ók svo greitt.

Maðurinn, sem var rúmlega tvítugur, var færður niður á lögreglustöð. Þar var hann sviptur ökuréttindum.

Tveir aðrir menn voru stöðvaði vegna ofsaakstur. Annarsvegar var maður stöðvaður á 132 kílómetra hraða á Eyrarbakkavegi. Svo var annar ökumaður tekinn á 130 kílómetra hraða á Hellisheiðinni. Báðir mega búast við sektum.

Lögreglan á Selfossi er farinn að sekta ökumenn fyrir að vera á nagladekkjum.

Alls voru fjórir ökumenn kærðir fyrir slík brot í gær í umdæmi lögreglunnar á Selfossi. Þess má geta að fimm þúsund króna sekt liggur við hverju dekki sem er enn þá neglt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×