Innlent

Útvarpsstjóri: Jóhanna er ljósið í myrkrinu

Páll Magnússon.
Páll Magnússon.

„Sigurganga hennar var eins mikil og Ríkisútvarpið þoldi," segir útvarpsstjórinn Páll Magnússon sem er himin lifandi yfir góðu gengi Jóhönnu Guðrúnar og föruneytis í Eurovison í gærkvöldi.

Þegar er búið að skipuleggja móttöku upp á Leifsstöð til þess að tak á móti Jóhannu þegar hún lendir á Íslandi ásamt föruneyti. Hún kemur fljúgandi frá Kaupmannahöfn og er áætlaður komutími klukkan þrjú í dag.

Páll segir að gott gengi Jóhönnu sé gríðarlega skemmtilegt: „Og það er gaman fyrir Ríkissjónvarpið að geta orðið til þess að þjóðin brosi í gegnum volæðið sem virðist hafa ríkt hér á landi," segir Páll.

Hann bætir við að það hafi verið við hæfi að Jóhanna hafi náð slíkum árangri á fyrsta almennilega sumardeginum í ár.

„Þetta er eins og ljós í myrkrinu, líkt og loforð um betri tíð," segir Páll um þýðingu þess að Jóhanna hreppti annað sætið. Árangurinn er mikilvægur fyrir þjóðina eftir þennan gríðarlega erfiða vetur sem einkenndist af efnahagshruni og vetrahörkum.

Páll segir að Jóhanna sé vel að sigrinum komin. Hún sé eingöngu átján ára gömul og flutti lagið af slíkri festu að hörðustu menn í samkvæmi, sem hann sjálfur var staddur í gærkvöldi, felldu tár.

„Svo fáum við áhorfstölur á morgun. Það kæmi mér ekki á óvart að þar væru öll met slegin," segir Páll kampakátur að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×