Innlent

Hvar er Jón?

Jón Helgi.
Jón Helgi.

Lögreglan á Höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Jóni Helga Lindusyni. Ekki er vitað hvar hann hefur haldið sig síðan síðast liðinn miðvikudag er hann strauk frá Götusmiðjunni.

Talið er að hann sé á höfuðborgarsvæðinu.

Jón er fæddur 1993. Hann er um 175 cm á hæð, grannvaxinn og dökkhærður.

Þegar hann fór frá Götusmiðjunni var hann klæddur í svarta úlpu, gallabuxur og svarta skó.

Lögreglan biður alla sem geta gefið upplýsingar um ferðir Jóns eða dvalarstað hans að láta lögreglu vita í síma: 444-1000




Fleiri fréttir

Sjá meira


×