Innlent

Jóhönnu fagnað á Austurvelli síðdegis

Fagnaður verður á Austurvelli klukkan 17:30 í dag.

Reykjavíkurborg í samvinnu við RÚV undirbýr fagnaðarfundinn fyrir Jóhönnu og félaga hennar í íslensku sveitinni.

Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri, segir glæsilegan árangur Jóhönnu tilefni til að gleðjast.

„Okkur langaði að veita borgarbúum tækifæri til að taka á móti og fagna með Jóhönnu. Hún var landi og þjóð til mikils sóma í gær," segir Hanna Birna í tilkynningu sem send var frá borgarstjóra.

Jóhanna og fylgdarlið hennar fljúga til Íslands í dag og munu þau syngja á sviði framlag Íslands í keppninni, sem hreppti annað sætið, Is it True? Páll Óskar Hjálmtýsson mun hita upp og stýra viðburðinum á Austurvelli frá kl. 17.30. Bein útsending verður í Sjónvarpinu frá viðburðinum








Fleiri fréttir

Sjá meira


×