Innlent

Ráðherra: Sigur Jóhönnu mikilvæg landkynning

Jón Bjarnason var hæstánægður með Jóhönnu.
Jón Bjarnason var hæstánægður með Jóhönnu.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherrann Jón Bjarnason óskar Jóhönnu Guðrúnu Jónsdóttur til hamingju á bloggi sínu. Jón er einlægur í skrifum sínum og segir sigur hennar dýrmæta landkynningu fyrir þjóðina, ekki síst á þessum erfiðu tímum.

„Okkur er öllum ljóst að árangur Jóhönnu er persónulegur sigur hennar og þess fólks sem fylgdi henni út, en hann er einnig mikil og dýrmæt landkynning fyrir íslenska þjóð," segir Jón sem var augljóslega nokkuð hrifnæmur á meðan flutningi Jóhönnu stóð yfir.

„Mér fannst búnaður söngkonunnar og sviðið með þanin seglin í bakgrunni gefa flutningi lagsins einstaklega hreina og sanna umgjörð. Tignarleg og hrífandi með tærri rödd sinni söng Jóhanna Guðrún þetta fallega lag , Is it True í 2. sæti söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva í Moskvu í kvöld," segir sjávarútvegsráðherrann að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×