Innlent

Nasa gerir við geimsjónauka

Geimfarar eru nú að laga geimsjónaukann Hubble. Þeir eru að koma fyrir nýrri linsu og öðrum aukahlutum. Andvirði þessara aukahluta eru 88 milljónir dollara.

Viðgerðin er tímafrek og kostnaðarsöm. Einn geimfarinn var í átta klukkustundir í einni geimgöngunni.

„Þetta er eins og að glíma við björn," sagði Mike Massimino, einn geimfaranna þegar hann lýsti viðgerðarferlinu.

Auk þess eru geimfararnir að bæta nýjum hlutum við sjónaukann. Meðal annars græju sem á að gera sjónaukanum kleyft að dýpka skilning sjónaukans á því hvernig plánetur og stjörnukerfi myndast.

Hubble sjónaukinn er nefndur í höfuðið á bandaríska stjörnufræðingnum Edward Hubble. Sjónaukinn hefur tekið ótrúlegar myndir í geimnum og er nauðsynlegur vísindamönnum til þess að kortleggja geiminn.

Hér má svo skoða myndir sem sjónaukinn hefur tekið.

 








Fleiri fréttir

Sjá meira


×