Innlent

Þúsundir í miðbænum fögnuðu Júróvisjón

Mikið húllum hæ var í miðbænum í nótt. Myndin tengist ekki fréttinni beint.
Mikið húllum hæ var í miðbænum í nótt. Myndin tengist ekki fréttinni beint.

Þúsundir manna voru í miðbæ Reykjavíkur í gærkvöldi eftir gott gengi Íslendinga í Júróvisjón.

Samkvæmt lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var mikill erill hjá lögreglumönnum en nóttin gekk stóslysalaust fyrir sig. Mikið var um fagnaði í heimahúsum en að sögn lögreglu var ekki mikið um kvartanir.

Eitthvað var um pústra en engin hafði kært líkamsárás nú í morgun.

Lögreglan segir að nóttin hafi gengið vel fyrir sig. Enginn sérstakur viðbúnaður var hjá lögreglu vegna söngvakeppninnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×