Innlent

Vildi lögregluaðstoð en var handtekinn fyrir lyfjaakstur

Maðurinn óskaði eftir aðstoð en endaði á því að vera handtekinn.
Maðurinn óskaði eftir aðstoð en endaði á því að vera handtekinn.

Lögreglan á Selfossi stöðvaði tvo menn fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna í gærkvöldi.

Annar maðurinn kom niður á lögreglustöð akandi en hann vildi aðstoð lögreglunnar.

Lögreglumenn sem tóku á móti honum fóru hinsvegar að gruna að maðurinn gæti verið undir áhrifum vímuefna og úr varð að það var tekin blóðprufa úr honum.

Kom þá í ljós að hann var undir áhrifum fíkniefna. Má hann því búast við sektum og ökuleyfissviptingu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×