Innlent

Fann upp hundaþvottavél

Hundaþvottavélin furðurlega.
Hundaþvottavélin furðurlega.

Frakkinn Romain Jarry er búinn að finna upp hundaþvottavél sem hefur slegið í gegn í heimabæ hans, St. Max. Jarry, sem er rúmlega þrítugt athafnaskáld, er að reyna að kynna nýjungina fyrir Bretum.

Ekki eru allir jafn sannfærðir en Jarry sver að vélin geri dýrunum ekkert nema gott og þau þjáist ekkert á meðan þvottinu stendur.

Nú þegar er hægt að fara á nokkurskonar dýraþvottahús þar sem dýraeigendur borga klink fyrir að þrífa dýrin.

Jarry segir að hundarnir sitji pollrólegir á meðan vélin baðar þá. Aftur á móti tekur talsverðan tíma að þurrka dýrunum.

Í viðtali við The Daily Mail segist Jarry vonast til þess að Bretar taki vel í þessa nýjung.

Þess má geta að það er einnig hægt að þvo köttum í sömu vél.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×