Innlent

Örvæntingar gætir meðal umbjóðanda Vinnumálastofnunar

Nýtt yfirlit Vinnumálastofnunar um stöðuna á vinnumarkaði sýnir að tæplega átta þúsund manns - eða 4,8 prósent - voru skráðir atvinnulausir í desember síðast liðnum og hafði fólki án atvinnu fjölgað um 45 prósent frá því í mánuðinum á undan. Annir eru gríðarlegar á vinnumiðlun Vinnumálastofnunar.

,,Það er mikil breyting frá því sem var fyrir ári síðan þegar voru innan við 1000 manns á skrá," segir Hugrún Jóhannesdóttir, forstöðumaður Vinnumálastofnunar á höfuðborgarsvæðinu.

Atvinnuleysið er nú mest á Suðurnesjum, en minnst á Vestfjörðum og jókst það eilítið meira á höfuðborgarsvæðinu en landsbyggðinni. Hugrún segir atvinnleitendur alla jafna yfirvegaða og rólega, þrátt fyrir að biðin geti verið löng hjá Vinnumálastofnun. En sögurnar eru margar og sumir eru ákaflega illa staddir.

,,Þetta eru afskaplega sérstakar aðstæður sem ekkert okkar sem vinnur hér hefur upplifað áður,"

Aðspurð hvor hún finni fyrir örvæntingu hjá umbjóðendum sínum hér segir Hugrún: ,,Já, ég held að við gerum það öll, mismikið auðvitað en í einhverjum tilfellum,"

Horfur á vinnumarkaði í þessum mánuði eru heldur dökkar. Búist er við áframhaldandi samdrætti í mörgum atvinnugreinum og því er spáð að rekstur margra minni fyrirtækja verði afar erfiður. Spár um atvinnuleysi eru settar fram með fyrirvara vegna óvissu í efnahagslífinu, en þó er talið að nú í janúar muni það aukast verulega og fara í allt að tæp 7 prósent.

Og þess skal getið að mikilvægt er að fólk skrái sig fyrst á Netinu og fái þar upplýsingar um nauðsynleg fylgigögn. Skráning hjá Vinnumálastofnun á svo ekki að fara fram fyrr en daginn sem fólk verður launalaust.






Tengdar fréttir

Vill tryggja að sem fæstir lendi á atvinnuleysisskrá

„Atvinnuleysi er því miður að aukast en okkar verkefni er að tryggja að sem fæstir lendi á atvinnuleysisskrá og þeir séu þar sem styst," sagði Geir H. Haarde forsætisráðherra að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun.

Atvinnuleysi jókst um 45 prósent á milli mánaða

Skráð atvinnuleysi var tæp fimm prósent í desember og jókst það um 45 prósent að meðaltali frá mánuðinum á undan. Búist er við að atvinnuleysi aukist verulega nú í janúar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×