Vilja að Guðlaugur endurskoði ákvörun um St. Jósefsspítala 13. janúar 2009 20:27 St. Jósefsspítali í Hafnarfirði.
Hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar heilsugæslustöðvanna í Hafnarfirði og Garðabæ lýsa yfir áhyggjum af fyrirhuguðum breytingum vegna ákvörðunar Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, heilbrigðisráðherra, um stórfelldar breytingar á starfsemi St. Jósefsspítala í Hafnarfirði. Starfsfólkið vill að Guðlaugur endurskoði ákvörðun sína. ,,Sú þjónusta sem spítalinn hefur veitt íbúum Hafnarfjarðar, Garðabæjar og Álftaness í áratugi er ómissandi þáttur í heilbrigðisþjónustu svæðisins. Skjólstæðingar heilsugæslunnar hafa getað sótt þangað sérfræðiþjónustu með skjótum, skilvirkum og hagkvæmum hætti. Það er faglegt álit okkar að styrkja eigi þessa þjónustu frekar en að sundra," segir ályktun hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða. Þar segir einnig að á milli hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða á heilsugæslu og starfsfólks St. Jósefsspítala sé skilvirkt og gott faglegt samstarf, sem styrki meðal anns heimahjúkrun til þess að hjúkra veikum einstaklingum með flóknar hjúkrunarþarfir óháð aldri. ,,Fyrirhugaðar breytingar á starfsemi St. Jósefsspítala munu ótvírætt hrófla við þeirri samfelldu og skilvirku nærþjónustu sem nú þegar er til staðar fyrir skjólstæðinga heilsugæslunnar. Þeir þurfa því að leita í dýrari úrræði á verkefnahlaðið og yfirfullt hátæknisjúkrahús. Við hvetjum heilbrigðisráðherra til að endurskoða ákvörðun sína á fyrihugaðri breytingu á starfsemi St. Jósefsspítala í Hafnarfirði. Einnig lýsum við yfir vilja til að koma að viðræðum um framtíð heilbrigðismála í okkar byggðarlögum," segir í ályktun starfsfólksins. Kristín Pálsdóttir yfirhjúkrunarfræðingur Heilsugæslunnar Sólvangi, Ingibjörg Ásgeirsdóttir yfirhjúkrunarfræðingur Heilsugæslslunnar Firðinum og Jóna Guðmundsdóttir yfirhjúkrunarfræðingur Heilsugæslunnar í Garðabæ skrifa undir ályktunina fyrir hönd hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða á heilsgæslustöðvunum í Hafnarfirði og Garðabæ.
Mest lesið Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Innlent Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Innlent Fleiri fréttir Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Sjá meira