Sótti um stöðu saksóknara vegna bankahrunsins eftir hvatningu Magnús Már Guðmundsson skrifar 13. janúar 2009 17:46 Ólafur Þór Hauksson tekur við embætti sérstaks saksóknara vegna bankahrunsins 1. febrúar nk.
Ólafur Þór Hauksson, sýslumaður á Akranesi, sem Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, skipaði í dag til að gegna embætti sérstaks saksóknara vegna bankahrunsins gerði það eftir hvatningu. Hann vill ekki greina frá því hvort að Björn hafi hvatt hann til að sækja um stöðuna. Dómsmálaráðherra hafði samráð við fulltrúa allra þingflokka í allsherjarnefnd Alþingis þegar hann skipaði Ólaf í starfið. Nýja starfið leggst afar vel í Ólaf. Ólafur mun veita forstöðu rannsóknar- og saksóknaraembætti sem rannsaka á grun um refsiverða háttsemi í aðdraganda, tengslum við og kjölfar bankahrunsins í byrjun október á seinasta ári. Hugleiddi ekki að sækja um stöðuna þegar hún var fyrst auglýst ,,Ég var hvattur til að sækja um þetta starf og bent á möguleikann að fá tímabundna lausn frá störfum," segir Ólafur aðspurður hvort dómsmálaráðherra hafi hvatt hann til að sækja um stöðuna. Ólafur telur óþarfi að greina nánar frá aðdraganda umsóknar sinnar. Hann segist ekki hafa leitt hugann sérstaklega af því að sækja um stöðuna þegar hún var fyrst auglýst. Umsóknarfrestur var framlengdur eftir að enginn sótti um stöðuna og rann hann út í gær. Afar krefjandi verkefni ,,Þetta er mjög áhugavert og stórt verkefni og er á því sviði sem ég hef starfað að nokkuð lengi, þ.e.a.s. rannsóknir og saksókn þannig að þetta er mjög ögrandi verkefni," segir Ólafur. Hann greinir mikinn stuðning meðal almennings og ráðamanna við að þessi vinna fari fram. Sýslumaður í 11 ár Ólafur tekur við embættinu 1. febrúar næst komandi. Hann segir að næstu dagar muni fara í að ganga frá lausum endum í núverandi starfi sem og undirbúning fyrir nýja starfið. Ólafur hefur gegnt embætti sýslumanns á Akranesi, sem hann kveður nú tímabundið, allt frá árinu 1998.
Tengdar fréttir Ólafur Þór verður sérstakur saksóknari Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra hefur í dag, að höfðu samráði við fulltrúa allra þingflokka í allsherjarnefnd Alþingis, falið Ólafi Þór Haukssyni, sýslumanni á Akranesi, að gegna embætti sérstaks saksóknara. 13. janúar 2009 16:11 Mest lesið Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Innlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Innlent Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Innlent Kveiktu bál á bílastæði Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Erlent Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Erlent Íranir svara fyrir sig og Trump ýjar að árásum á Kharg-eyju Erlent Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Innlent Fleiri fréttir Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Sjá meira
Ólafur Þór verður sérstakur saksóknari Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra hefur í dag, að höfðu samráði við fulltrúa allra þingflokka í allsherjarnefnd Alþingis, falið Ólafi Þór Haukssyni, sýslumanni á Akranesi, að gegna embætti sérstaks saksóknara. 13. janúar 2009 16:11