Innlent

Mótmælendur lausir úr haldi lögreglu

Mennirnir tveir sem handteknir voru við Alþingi í morgun eftir að þeir brutu öryggismyndavél við húsið eru lausir úr haldi lögreglu. Þetta staðfesti varðstjóri í samtali við fréttastofu.

Um þrjátíu manns tóku þátt í mótmælaaðgerðinni í morgun og gerðu þau tilraun til þess að varna því að að Geir H. Haarde, forsætisráðherra, og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra, kæmust inn. Lögreglumenn aðstoðuðu ráðherrana að lokum við að komast inn í húsið en ríkisstjórnarfundur hófst þar klukkan hálftíu.

Þórunn Sveinbjarnardóttir mætti skömmu síðar og eftir nokkurn barning komst hún einnig inn í húsið.










Tengdar fréttir

Mennirnir enn í haldi lögreglu

Mennirnir tveir sem handteknir voru við Alþingi í morgun eftir að þeir brutu öryggismyndavél við húsið eru enn í haldi lögreglunnar. Búist er við því að teknar verði skýrslur af mönnunum síðar í dag og þeim síðan sleppt, eins og venja er í málum af þessu tagi.

Tveir handteknir við Alþingishúsið - myndband

Hópur mótmælenda tók sér stöðu fyrir framan inngang Alþingishússins og reyndu þau að varna ráðherrum inngöngu í húsið í morgun. Um þrjátíu manns tóku þátt í aðgerðinni og gerðu þau tilraun til þess að varna því að að Geir H. Haarde forsætisráðherra og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra kæmust inn. Lögreglumenn aðstoðuðu ráðherrana að lokum við að komast inn í húsið en ríkisstjórnarfundur hófst þar klukkan hálftíu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×