Innlent

Niðurstaðan í samræmi við kannanir

Bjarni Benediktsson segir úrslitin í samræmi við skoðanakannanir.
Bjarni Benediktsson segir úrslitin í samræmi við skoðanakannanir.
„Þetta er nú reyndar mjög í samræmi við kannanir. Okkar hlutverk er að endurvinna það traust. Ég er rétt að hefja þessa vinnu," sagði Bjarni Benediktsson í samtali við Ríkissjónvarpið nú í kvöld.

Sjálfstæðisflokkurinn tapar 10 þingmönnum samkvæmt fyrstu tölum. Bjarni sagði að ríkisstjórnarinnar biði mjög erfið verkefni. Hann óskaði henni góðs gengis.

Bjarni sagði í fréttum Stöðvar 2 að hann vonaðist til þess að Sjálfstæðisflokkurinn fengi meira fylgi þegar líður á kvöldið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×