Lögregluníðingur kominn aftur 2. október 2009 05:45 Monte Carlo. Maðurinn réðst á lögreglumennina í grennd við veitingastaðinn.
Karlmaður sem gekk í skrokk á tveimur lögreglumönnum og slasaði þá í janúar á síðasta ári rauf endurkomubann þegar hann kom til landsins fyrr í vikunni. Hann var handtekinn við komuna og úrskurðaður í gæsluvarðhald. Hann var ákærður fyrir héraðsdómi í gær. Maðurinn sem um ræðir, Algis Rucinskas, réðst á lögreglumennina tvo, sem voru óeinkennisklæddir við fíkniefnaeftirlit, í nágrenni við veitingastaðinn Monte Carlo á Laugavegi. Hann veitti þeim þung höfuðhögg með krepptum hnefa og skaðaði báða. Fjórir félagar hans hugðust leggja honum lið, en lögreglumönnunum barst þá liðsauki og gátu þeir yfirbugað árásarmennina. „Árás ákærða var fólskuleg og ógnvekjandi og brotavilji hans einbeittur," sagði í dómi Hæstaréttar, sem dæmdi árásarmanninn í þriggja mánaða fangelsi. Honum var sleppt á reynslulausn þegar hann átti fjörutíu daga óafplánaða, vísað af landi brott og settur í tíu ára endurkomubann sem hann hefur nú rofið. Þetta er annar maðurinn sem rýfur endurkomubann til landsins á skömmum tíma. Tomas Arlauskas, áður Malakauskas, sem afplánaði refsingu vegna líkfundarmálsins í Neskaupstað, kom hingað fyrir nokkrum dögum og situr nú inni.
Mest lesið Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Innlent Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Innlent Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Erlent Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Innlent Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Innlent Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Innlent Fleiri fréttir Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Stýrivextir hækka og borgarísjaki í Djúpinu Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Eiga eftir að taka umsækjendur í viðtöl Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Hin hliðin ljúgi að landsmönnum Sjá meira