Jóhanna syngur jólin inn fyrir Svía 2. október 2009 06:00 Vinsæl á jólatónleika. Jóhanna Guðrún kemur fram á jólatónleikum í Globen í Stokkhólmi aðra helgina í desember. Þeir hafa notið mikilla vinsælda hjá Svíum undanfarin ár.
Jóhanna Guðrún, Eurovision-stjarna okkar Íslendinga, er ein af stjörnum hins árlega Julegalan sem haldið er um alla Svíþjóð ár hvert. Umgjörð tónleikanna minnir á Frostrósar-tónleikana sem haldnir hafa verið hér á landi og notið mikilla vinsælda. Um tvenna tónleikastaði er að ræða, annars vegar í Globen í Stokkhólmi og hins vegar í Karlstadt. Jóhanna mun koma fram á tvennum tónleikum aðra helgina í desember. Augljóst er að öllu er tjaldað til fyrir tónleikana því dýrustu miðarnir kosta tæplega 25 þúsund krónur. Innifalið í því er matur með öllu. Meðal þeirra sem troða upp með Jóhönnu má nefna belgísku söngkonuna Kate Ryan og svo fjölda þekktra sænskra tónlistarmanna. Vinsældir Jóhönnu í Svíþjóð virðast vera þónokkrar en einn þátttakandi í sænska Idolinu, Erik Grönwall, tók sig til og flutti lagið Is it True í nýlegum þætti keppninnar. Norðurlandabúar virðast því sólgnir í að fá Jóhönnu til að syngja inn jólin fyrir þá. Eins og Fréttablaðið greindi frá fyrir skemmstu þá óskaði danska ríkissjónvarpið, DR, eftir því að Jóhanna myndi syngja á árlegum jólatónleikum þess. María Björk Sverrisdóttir, umboðsmaður Jóhönnu, segir að það séu meiri líkur en minni á að Jóhanna þekkist það boð, enn eigi þó eftir að ganga frá lausum endum. Hún upplýsir jafnframt að Austur-Evrópuþjóðir hafi tekið miklu ástfóstri við Jóhönnu eftir að diskur hennar, Elvis & Butterflies, kom þar út. „Hún er meðal annars í efsta sæti vinsælustu útvarpsstöðvar Slóveníu og svo hafa Pólverjar tekið henni vel,“ segir María sem býst við þéttskipaðri dagskrá næstu daga. Jóhanna mun þó vera á landinu um þessar mundir og ætlaði meðal annars að fagna fimmtán ára afmæli Söngskólans, þar sem hún er nánast alin upp.- fgg
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Svana á tímamótum og selur slotið Lífið Fleiri fréttir Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Sjá meira