Svalaslysið í Ölveri: Gríðarleg geðshræring Valur Grettisson skrifar 29. apríl 2009 10:19 Sumarbúðir KFUM og KFUK þar sem börnin dvöldu. „
Börnin voru á kvöldvöku þegar svalirnar hrundu," segir Arndís Halla Guðmundsdóttir, en tuttugu börn féllu niður af svölum í Ölveri í Borgarnesi klukkan hálf níu í gærkvöldi. Um er að ræða tólf ára börn í Grundaskóla á Akranesi sem voru í skólaferðalagi. Atvikið átti sér stað á kvöldvökunni þegar tveir nemar fóru út úr húsinu í einum leiknum. Þá þustu börnin tuttugu út á svalir til þess að fylgjast með þeim. Aðeins örfáum sekúndum síðar heyrði Arndís lætin. „Við kiktum niður af svölunum og sáum þau grátandi, föst í spýtnabrakinu, gargandi," segir Arndís sem er ein af fimm foreldrum sem höfðu umsjón með krökkunum í ferðinni. Hún segir að við fyrstu sýn hafi slysið virst talsvert alvarlegra en raunin varð. „Það kom einn á móti mér og hélt utan um blæðandi höfuðið," lýsir Arndís hrikalegri aðkomunni. Þá þegar hringdi hún í neyðarlínuna. Foreldrarnir byrjuðu að hlúa að börnunum og þá sérstaklega barninu sem blæddi úr. Arndís segir að gríðarleg geðshræring hafi gripið um sig í hópnum. Í kjölfarið þurfti að kalla út áfallateymi til þess að hlúa að andlegri líðan barnanna. Í ljós kom að ekkert barnanna slasaðist alvarlega. Að sögn Arndísar voru það helst áverkar vegna fallsins sem hrjáðu börnin, sum voru tognuð í hálsi, önnur voru með skurði eftir spýtnabrakið. Miðað við að börnin féllu niður um tvo metra með svölunum, þá er það einstakt hversu vel þau sluppu öll frá slysinu. „Okkur foreldrunum finnst þetta ótrúlegt," segir Arndís um heppni barnanna. Hún segir að sjúkrabílar hafi ekið nokkrum börnum upp á spítala þar sem hlúð var að þeim. Síðan kom rúta að sækja þau börn sem eftir voru. Þeim var ekið heim til sín eftir að þau fengu áfallahjálp. Sjálf átti Arndís tólf ára strák í ferðinni, þegar blaðamaður spyr hana hvort hann hafi verið á svölunum, svarar hún fegin: „Minn var ekki á svölunum."
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Innlent Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Innlent Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður Innlent Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Innlent Fleiri fréttir Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Meirihluti segir já í Reykjavík suður „Ég er mjög kátur“ Nei-liðar umtalsvert fleiri samkvæmt fyrstu tölum í Norðvesturkjördæmi Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sjá meira