Innlent

Innbrotsþjófar handteknir á Selfossi

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Lögreglumaður við störf. Mynd/ Vilhelm.
Lögreglumaður við störf. Mynd/ Vilhelm.
Lögreglan á Selfossi handtók tvo menn um tvítugt um fimmleytið í nótt þegar þeir voru að reyna að brjótast inn í iðnaðarhúsnæði á Gagnheiði. Mennirnir báru hettur yfir höfðum og voru með kúbein meðferðis. Mennirnir forðuðu sér á hlaupum þegar þeir urðu varir við lögregluna en fótfráir lögreglumenn náðu þeim fljótlega. Þeir höfðu ekki náð neinum verðmætum en höfðu unnið einhverjar skemmdir á húsnæðinu. Mennirnir voru yfirheyrðir en var svo sleppt að því loknu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×