Innlent

Stjórnlagaþing gæti kostað einn og hálfan milljarð

Birgir Ármansson
Birgir Ármansson

Birgir Ármannsson alþingismaður segist hafa gert tilraun til þess að áætla kostnað við væntanlegt stjórnlagaþing. Niðurstaða Birgis er sú að kostnaðurinn gæti numið á bilinu 1.200 og 1.500 milljónir króna. Hann segir óvissuþættina þó vissulega vera marga en í lauslegum útreikningum sínum en miðað sé við útgjöld sem falla muni til miðað við ákvæði frumvarps sem lagt var fram á Alþingi í dag.

Í dag hófst fyrsta umræða á Alþingi um frumvarp til stjórnarskipunarlaga, sem flutt er af forsætisráðherra, fjármálaráðherra, varaformanni Framsóknarflokksins og formanni Frjálslynda flokksins. Í umræðunum var Jóhanna Sigurðardóttir spurð hver yrði kostnaðurinn af stjórnlagaþingi sem gert er ráð fyrir í frumvarpinu. Hún gat ekki svarað þessum spurningum og vísaði til þess að áætlanir um þetta yrðu kynntar viðkomandi þingnefnd þegar málið kæmi þar til umfjöllunar.

„Það er reyndar með ólíkindum, að forsætisráðherra og fjármálaráðherra skuli flytja mál af þessu tagi án þess að geta gert grein fyrir áætluðum kostnaði vegna þess. Þeim er það að vísu ekki skylt samkvæmt þingsköpum, þar sem frumvarpið er flutt sem þingmannafrumvarp en ekki stjórnarfrumvarp, en minna má á að allur undirbúningur málsins fór fram innan stjórnarráðsins og á vegum viðkomandi ráðherra. Þeim hefði því átt að vera í lófa lagið að láta gera kostnaðarmat af þessu tagi áður en málið var lagt fram á Alþingi," segir í tilkynningu frá Birgi.

„Af þessu tilefni gerði ég tilraun til að áætla þennan kostnað og er niðurstaða mín að kostnaðurinn gæti numið milli 1.200 og 1.500 milljónum króna. Óvissuþættirnir eru vissulega margir, en í lauslegum útreikningum mínum er miðað við þau útgjöld sem falla munu til miðað við ákvæði frumvarps um stjórnlagaþing, en drög að því eru fylgiskjal með stjórnarskrárfrumvarpinu. Hef ég hliðsjón af kostnaði vegna starfa Alþingis á þessu ári, en ljóst er að stjórnlagaþingið verður skipulagt með hliðsjón af skipulagi Alþingis í öllum megindráttum."

Meðfylgjandi er greinargerð, þar sem finna má rökstuðning fyrir niðurstöðum Birgis.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×