Innlent

Niðurstöður komnar úr krufningu í Dúfnakofamálinu

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Lögreglan hefur fengið niðurstöður réttarmeinafræðings vegna Dúfnakofamálsins svokallaða.

Sirrey María Axelsdóttir fannst látin í dúfnakofa í Hafnarfirði í byrjun febrúar síðastliðnum. Dánarorsökin er enn óljós og ekki hefur verið útilokað að henni hafi verið ráðinn bani. Einn maður var í gæsluvarðhaldi um tíma vegna málsins en það var sambýlismaður Sirreyjar. Rannsókn málsins hefur tafist vegna þess að niðurstöður úr krufningu lágu ekki fyrir.

Friðrik Smári Björgvinsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir að ekki sé hægt að greina frá niðurstöðum krufningarinnar að svo komnu máli. Ákvörðun um framhald á rannsókn málsins verði hins vegar tekin út frá þeim.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×