Ljósmyndari stoppar í matargöt þjóðarinnar 12. nóvember 2009 08:00 í eldhúsinu Haraldur sýnir landsmönnum hvernig á að matreiða ýmsa rétti frá grunni í tímaritinu Stoppað í matargatið. fréttablaðið/anton
Ljósmyndarinn Haraldur Jónasson, Hari, hefur gefið út tímaritið Stoppað í matargatið. Fyrsta tölublaðið leit dagsins ljós í gær. Tímaritinu verður dreift ókeypis á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri. „Þetta tímarit gengur út á mat sem allir eru að borða og fólk getur búið til heima hjá sér frá grunni,“ segir Hari. Í fyrsta tölublaðinu er sýnt hvernig á að reiða fram heimatilbúinn skyndibita þannig að útkoman verði enn gómsætari en á hinum hefðbundnu skyndibitastöðum. Sýnt er hvernig á að búa til eigin pitsur, hamborgarabrauð og hinar ýmsu sósur frá grunni, auk ýmislegs fleira. „Hugmyndin að þessu kviknaði fyrir tveimur árum þegar ég bjó úti í Danmörku. Þá var ekki hægt að kaupa almennilegan hamborgara eða hamborgarabrauð úti í búð,“ segir Hari. Þrátt fyrir að meiri tími fari í að gera uppskriftirnar frá grunni segir hann að það sé vel þess virði. „Þetta tekur aðeins lengri tíma en fyrir vikið verður þetta tíu sinnum betra. Þá veit maður líka nákvæmlega hvað maður er að setja ofan í sig.“ Stoppað í matargatið kemur út fjórum sinnum á ári og verður hægt að nálgast tímaritið í verslunum Eymundsson, á kaffihúsum og öðrum samkomustöðum. Einnig verður hægt að skoða það á slóðinni Matargatid.is. freyr@frettabladid.is
Mest lesið Var ekki að lifa lífinu heldur að þrauka það Lífið Kolféll fyrir New York en sér íslenska náttúru í hillingum Lífið Handlagin hjón selja tvær eignir í sögulegu farandshúsi Lífið Sú elsta í sögu Ungfrú Ísland glímdi við átröskun og varð minnst 39 kíló Lífið Kjalar ástfanginn í tvö ár Lífið Óttar keypti 320 milljóna króna þakíbúð Lífið Tónlistarbransadrottning selur miðbæjarslotið Lífið Enginn til ama á hátíðinni Tíska og hönnun Alda Karen keppir í hermiakstri Lífið Nýju Harry, Ron og Hermione fundin Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Tónlistarbransadrottning selur miðbæjarslotið Handlagin hjón selja tvær eignir í sögulegu farandshúsi Kjalar ástfanginn í tvö ár Diddú tíu þúsundasti gestur fótboltabullnanna Sú elsta í sögu Ungfrú Ísland glímdi við átröskun og varð minnst 39 kíló Alda Karen keppir í hermiakstri Var ekki að lifa lífinu heldur að þrauka það Eilish sópaði að sér verðlaunum á AMA-hátíðinni Kolféll fyrir New York en sér íslenska náttúru í hillingum Brauðtertu- og ostakökukeppni á Selfossi Sara Björk og Árni kaupa í Urriðaholti Senjórítur og Pálmi Gunnars stálu senunni á Rottweiler Eyjaherrar heiðruðu sjötugan Ásgeir í stjörnufans „Þessi þriggja daga hátíð er algjört konfekt” Þarf ekki stóra íbúð til að gera heimilið fallegt Ásta Kristrún og Valgeir biðla til vina í leit að húsnæði Óttar keypti 320 milljóna króna þakíbúð Segist hafa neyðst til að vera Laufey í beinni útsendingu Stjörnulífið: Fröllur í poka og franska rívíeran Ástir, losti, fíkn og svik – dauði Marilyn Monroe Flytur til Sydney Drake kom fram á tónleikum í 66°Norður Reisa styttu af Birni í Kópavogi Lauk krefjandi háskólanámi og barðist við lífshættuleg veikindi á sama tíma Krakkatían: Mona Lisa, VÆB og Þjóðhátíð Segja Freddie Mercury eiga laundóttur Dráttarvéladagur er á Blikastöðum í dag Skotin flakka milli Enoks og Birgittu: „Settu franskarnar í pokann“ Sinnir sjúklingum í sama herbergi og hún fékk greiningu Fréttatía vikunnar: Evrópudeildin, kappakstur og sólmyrkvi Sjá meira