Ríkur þingvilji til að sækja um ESB-aðild 29. maí 2009 04:15 Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra flutti þingsályktunartillögu ríkisstjórnarinnar um aðildarumsókn að Evrópusambandinu í gær. Breiður þingvilji er til aðildarviðræðna en stjórn og stjórnarandstaða vilja fara ólíkar leiðir.fréttablaðið/GVA
Breiður vilji er á Alþingi fyrir aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu. Við upphaf þingumræðu um tillögu ríkisstjórnarinnar þess efnis í gærmorgun var tillögu stjórnarandstöðuflokkanna, Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks, sama efnis útbýtt. Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra sagði gærdaginn sögulegan enda sýndi tillaga stjórnarandstæðinga að hægt væri að ná samstöðu um málið í þinginu. Hann reifaði helstu rök með og á móti Evrópusambandsaðild og sagði mótrökin bæði lög- og réttmæt. En hann væri ósammála þeim. Trú hans væri sú að hægt sé að semja um sérlausnir í mikilvægum málaflokkum. Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, er á hinn bóginn vantrúaður á að undanþágur og sérreglur fáist. Byggir hann þá trú sína á reynslu Norðmanna. Þar af leiðandi sagðist Steingrímur þeirrar skoðunar að þjóðin myndi, þegar þar að kæmi, hafna aðild að Evrópusambandinu í þjóðaratkvæðagreiðslu. En málið væri þá úr sögunni og við hefðum það ekki lengur hangandi yfir okkur. Steingrímur sagði svo eðlilegt að tillögurnar tvær yrðu „bræddar saman“. Málflutningur þingmanna Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks var á einn veg: stjórnartillagan er hrákasmíð.„Handónýtt plagg,“ sagði til dæmis Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, og bætti við að hlegið yrði að Íslendingum í Brussel þegar tillagan hefur verið þýdd á erlend mál. Um leið ítrekaði hún þá skoðun sína að sækja bæri um aðild að Evrópusambandinu. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, sagði Ísland ganga án sjálfsvirðingar og reisnar til viðræðna við Evrópusambandið eins og sakir stæðu og taldi harla ólíklegt að leið ríkisstjórnarinnar yrði til þess að góðir samningar næðust. Þráinn Bertelsson, þingmaður Borgarahreyfingarinnar, kvað þingflokk sinn fagna málinu enda þinginu falið að ná niðurstöðu og þjóðinni svo að samþykkja samningsniðurstöður á endanum. bjorn@frettabladid.is
Mest lesið „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent „Áfall fyrir starfsfólk“ Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi Innlent Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent Fleiri fréttir MMS ekki kunnugt um neinar breytingar á einkunnagjöf Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi „Áfall fyrir starfsfólk“ Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik Sjá meira