Innlent

Telur að stjórnarflokkarnir styðji tillögu framsóknarmanna

Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins
Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins Mynd/GVA
Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, er bjartsýn á að stjórnarflokkarnir muni styðja frumvarp sem þingmenn flokksins lögðu fram á Alþingi í dag.

Með frumvarpinu vilja framsóknarmenn að hámarkshækkun vísitölu neysluverðs verði bundin við 4%, að ríkið hætti að gefa út verðtryggð ríkisskuldabréf nema í algjörum undantekningartilfellum og að sett verði á stofn nefnd sem skili tímasettum tillögum til viðskiptanefndar um frekara afnám verðtryggingar á fjárskuldbindingum.

Í ljós yfirlýsinga Helga Hjörvars, formanns efnahags- skattanefndar Alþingis, og Steingríms J. Sigfússonar, fjármálaráðherra, kveðst Eygló bjartsýn á að stjórnarflokkarnir muni styðja frumvarpið. Hún bendir jafnframt á stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar máli sínu til stuðnings.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×