Innlent

Bótaþegar kallaðir í viðtal

Gissur Pétursson
Gissur Pétursson

Vinnumálastofnun er nú í átaki til að tryggja að þeir sem skráðir eru á atvinnuleysisbætur séu ekki jafnframt í vinnu. Líkt og Fréttablaðið greindi frá uppgötvaðist að svo var ástatt um fimmtán til tuttugu starfsmenn undirverktaka við Tónlistarhúsið.

Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar, segir að bótaþegar séu kallaðir óforvarandis í viðtal. Þannig sé tryggt að þeir séu á landinu og virkir í atvinnuleit. Slíkt er forsenda þess að fá atvinnuleysisbætur. Gissur segir um tvo milljarða eftir í Atvinnuleysistryggingasjóði og að óbreyttu dugi hann fram í október, nóvember.- kóp








Fleiri fréttir

Sjá meira


×