Innlent

Stefna mörkuð í nýmiðlun

Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra og Philippe Boillat af fastaskrifstofu Evrópuráðsins kynna dagskrá fundarins á Hótel Nordica í gær. 
fréttamblaðið/stefán
Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra og Philippe Boillat af fastaskrifstofu Evrópuráðsins kynna dagskrá fundarins á Hótel Nordica í gær. fréttamblaðið/stefán

 Ráðherrafundur Evrópuráðsins um fjölmiðlun og nýmiðla hófst í Reykjavík í gær. Ráðherrar allra 47 aðildarríkja ráðsins eða fulltrúar þeirra sitja fundinn ásamt fulltrúum alþjóðlegra hagsmunasamtaka.

Til umræðu er hvernig fjölmiðlar hafa breyst með tilkomu nýrra miðla á borð við blogg, samskiptavefi og netveitur. Sérstaklega er litið til áhrifa nýmiðla á tjáningarfrelsi og persónuvernd.

Á fundinum á að marka stefnu Evrópuráðsins á þessu sviði til næstu fimm ára, en slík stefnumörkun hefur reynst vera leiðbeinandi fyrir lagasetningu í Evrópuríkjum og víðar.

Fundinum lýkur í dag. - aa




Fleiri fréttir

Sjá meira


×