Innlent

Lögregla rannsakar andlát aldraðar konu á Hrafnistu

Hrafnistuheimilið í Hafnarfirði.
Hrafnistuheimilið í Hafnarfirði. Mynd/Valgarður Gíslason
Hrafnistuheimilin hafa tilkynnt Landlækni um lát 87 ára gamallar konu á Hrafnistu í Hafnarfirði og samkvæmt vinnuferlum óskað eftir lögreglurannsókn. Fram kemur í tilkynningu frá Hrafnistuheimilunum eru ekki uppi grunsemdir um að saknæmt athæfi hafi átt sér stað.

Þar segir jafnframt að starfsmaður Hrafnistu hafi heyrt hávaða berast frá herbergi konunnar undir kvöld á föstudaginn fyrir viku og mun starfsmaðurinn umsvifalaust farið á vettvang á vettvang.

„Þá var í herbergi konunnar níræður karlmaður sem býr í herbergi á hæðinni beint fyrir neðan. Konunni var mjög brugðið en engir áverkar sáust á henni og hún kenndi sér einskis meins. Hvorugt þeirra gat þó greint frá því sem gerst hafði. Fylgst var vel með þeim báðum um kvöldið og næstu nótt," segir í tilkynningunni.

Eftir læknisskoðun, daginn eftir var ákveðið að leggja konuna inn á hjúkrunardeild þar sem hún lést í gær.

Fram kemur í tilkynningunni að maðurinn sé undir eftirliti hjúkrunarfólks. Jafnframt að aðstandendum fólksins hafi verið upplýsti um atvikið og að lögreglurannsókn væri eðlileg í máli sem þessu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×