Innlent

Bensínlítrinn hækkar um 16 og fjörutíu

MYND/GVA

Bensínlítrinn í sjálfsafgreiðslu hefur hækkað um 16 krónur og 40 aura frá því í gær, sem er líklega mesta bensínhækkun á einum sólarhring til þessa.

Fyrst hækkuðu olíufélögin bensínlítrann um þrjár krónur og 90 aura vegna hækkunar á innkaupsverði og lækkandi gengis krónunnar. Síðan kom tíu króna hækkunin, sem samþykkt var á Alþingi í gærkvöldi, og tvær og fimmtíu í virðisaukaskatt ofan á það, eða samtals 16 og fjörutíu.

Lítrinn af bensíni í sjáfsafgreiðslu er því kominn upp í rétt tæpar 180 krónur og dísillítrinn í liðlega 170 krónur. Verðið er heldur lægra á sjálfsafgreiðslustöðvunum. Með fullri þjónustu er bensínlítrinn kominn í 186 og þrjátíu.

Félag íslenskra bifreiðenda FÍB mótmælir þessum hækkunum og bendir á að bíllinn sé það heimilistæki fjölskyldna í dreifbýlu landi, sem þær geta einna síst verið án. Auk þess komi hækkunin verst niður á þeim tekjulægstu og íbúum á landsbyggðinni, sem þurfa að fara langan veg eftir þjónustu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×