Innlent

Eitt undarlegasta safn landsins er í Hólminum

Mismunandi gruggugt vatn í glersúlum og veðurorð á gólfi eru einu sýningargripirnir í einu undarlegasta safni á Íslandi. Stykkishólmsbær fórnaði meira að segja bóksafninu á fegursta útsýnisstað bæjarins undir skringilegheitin.

Það er ekkert skrýtið að hin bandaríska Roni Horn hafi heillast svo af amtsbókasafninu í Stykkishólmi að hún vildi fá það undir eigið verk. Fjárframlag bresks listasjóðs hjálpaði til að sannfæra bæjaryfirvöld um að skófla bókunum út en fá í staðinn 24 glersúlur, með vatni úr jafnmörgum íslenskum jöklum. Það var í fyrstu gulleitt en vegna botnfalls er það nú orðið tært og gruggið situr á botninum. Vatnið á að tákna bráðnun íslenskra jökla vegna hlýnunar jarðar. Á gólfinu eru orð sem eiga að lýsa veðri.

Og fólk flykkist að til að skoða þetta og sér í gegnum gersúlurnar ýmis form birtast í umhverfinu. Aðsóknin varð strax mikil þegar opnað var árið 2007 og segir Ragnheiður Óladóttir safnstjóri að það ár hafi Vatnasafnið verið mest sótta safn landsins en hún telur það vera stórkostlegt listaverk.

Amtsbókasafnið hafði verið á Bókhlöðuhöfðanum frá árinu 1898 en var flutt niður í þessa skemmu, sem mörgum þykir henta betur sem bókasafn. Ragnheiður safnstjóri telur því að engu hafi verið fórnað. Þetta sé miklu fremur gjöf Roni Horn til Stykkishólms.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×