Innlent

Tryggt að hryðjuverkalögum verði ekki beitt í óskyldum málum

Ráðherrar fjölmiðlamála hjá 47 ríkja Evrópuráðsins, þar á meðal Íslands, samþykktu einróma í dag ályktun um að ríki ráðsins skuli tryggja að hryðjuverkalögum sé ekki beitt í málum óskyldum hryðjuverkum eða til að hefta tjáningafrelsi. Ráðherrafundi Evrópuráðsins um fjölmiðla og nýmiðlun lauk í Reykjavík í dag.

Ráðstefnunna sátu ráðherrar allra aðildarríkja Evrópuráðsins og einnig fulltrúar fjölmiðla og alþjóðasamtaka. Rætt var um hvernig best væri að samræma hefðbundna og nýstárlega fjölmiðlun.

Degi áður en ráðstefnan hófst var fundað um hryðjuveraklög og misbeitingu þeirra. Þar var rætt um dæmi um hvernig þeim hefði verið misbeitt og notkun þeirra í Bretlandi gegn íslenskum bönkum nefnt sem dæmi.

Í lokayfirlýsingu ráðstefnunnar frá í dag lýsa allir ráðherrar 47 aðildarríkja Evrópuráðsins því yfir að ríki ráðsins skuli með reglubundnum hætti endurskoða lög sín um baráttu gegn hryðjuverkum og hvernig þeim sé beitt. Þannig megi koma í veg fyrir misbeitingu þeirra í alls óskyldum málefnum, til að mynda þannig að tjáningarfresli sé heft eða upplýsingum haldið leyndum.

„Skýrsla sérfræðinga Evrópuráðsins sýnir að hryðjuverkalög hafa haft meiriháttar áhrif á fjölmiðla," segir Jan Kleijssen, fulltrúi Evrópuráðsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×