Innlent

Göngugarpurinn á Ingólfsfjalli fundinn

Ingólfsfjall.
Ingólfsfjall.

Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar í Árnessýslu og af höfuðborgarsvæðinu voru kallaðar út fyrr í kvöld vegna manns sem saknað var á Ingólfsfjalli líkt og Vísir sagði frá fyrr í kvöld.

Í tilkynningu frá Landsbjörgu segir að maðurinn, sem er um sjötugt, hafi orðið viðskila við gönguhóp sem hann var í en seinnipartinn í dag skall á svartaþoka í fjallinu.

Hann fannst fyrir ofan Þórisstaðanámu rétt eftir klukkan átta í kvöld og hafði þá verið á gangi allan tímann. Maðurinn var nokkuð sprækur eftir vistina á fjallinu og gekk niður með björgunarsveitamönnum.



Um 70-80 björgunarsveitamenn tóku þátt í leitinni.






Tengdar fréttir

Leitað að göngumanni á Ingólfsfjalli

Lögreglan ásamt björgunarsveitum af Selfossi og Hveragerði leita nú að sjötugum göngumanni sem varð viðskila við hóp sem var á fjallinu í dag. Hópurinn kom niður um hádegisbil en maðurinn skilaði sér ekki niður. Mikil þoka er á fjallinu og maðurinn ekki með búnað til þess að rata niður að sögn varðstjóra hjá lögreglu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×