Innlent

Fulltrúi AGS staðfestir orð Jóhönnu

Jóhanna Sigurðardóttir
Jóhanna Sigurðardóttir

Jóhanna Sigurðardóttir hefur nú fengið staðfest með símtali við fulltrúa Alþjóðagjaldeyrissjóðsins að misskilnings hafi gætt í túlkun Geirs H. Haarde á samskiptum forsætisráðuneytisins við AGS sem gerð voru að umtalsefni á Alþingi og í fjölmiðlum í dag.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá aðstoðarmanni forsætisráðherra nú í kvöld. Þar segir að ef farið sé yfir þessi samskipti virðist ljóst að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn vísi í tölvupósti sínum til Geirs til endanlegrar umsagnar sjóðsins til forsætisráðuneytisins sem virt var á heimasíðu ráðuneytisins samdægurs.

„Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, hefur hins vegar bent á að í fyrri ábendingum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins var margítrekað að um þær gilti trúnaður, eins og skýrt kemur fram í tölvupóstsamskiptum forsætisráðuneytisins og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sem nú hafa verið birt opinberlega," segir í tilkynningunni.








Tengdar fréttir

Geir segir Jóhönnu fara með rangt mál

Geir Haarde formaður Sjálfstæðisflokksins kom í pontu á Alþingi í dag undir liðnum óundirbúnar fyrirspurnir þar sem hann spurði Jóhönnu Sigurðardóttur út í samskipti forsætisráðuneytisins við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Geir sakaði Jóhönnu um að hafa sagt ósatt þegar hún sagði að fyrstu athugasemdir sjóðsins við nýju frumvarpi um Seðlabanka Íslands yrði að fara með sem trúnaðarmál.

Tölvupóstar Geirs og AGS

Geir H. Haarde hefur sent fjölmiðlum tölvupóstsamskipti sín og Poul Thomsen hjá IMF dagana 9. og 12. febrúar en það var á grundvelli þessarar samskipta var ákveðið að spyrja forsætisráðherra út í hina upphaflegu umsögn sjóðsins um frumvarp um breytingar á lögum um Seðlabankann.

Segir fullyrðingar Geirs Haarde ekki réttar

Forsætisráðuneytið hefur ákveðið að birta tölvupóstsamskipti milli ráðuneytisins og Alþjóða gjaldeyrissjóðsins í tilefni orða Geirs H. Haarde á Alþingi í dag. Þar sagði Geir að forsætisráðherra hefði sagt ósatt um áskilinn trúnað AGS á athugasemdum sem sjóðurinn sendi stjórnvöldum fyrr í þessum mánuði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×