Tæplega 7.000 manns eru fluttir af landi brott 15. október 2009 12:48
Fyrstu 9 mánuði ársins hafa 6.762 einstaklingar flutt af landi brott. Þar af eru ríflega helmingur með íslenskt ríkisfang eða 3.475 einstaklingar. Ef þróun fram að áramótum verður með sambærilegum hætti mun þetta þýða að samtals fjöldi einstaklinga sem flyst frá Íslandi árið 2009 er mjög svipaður og árið 2008. Í tilkynningu frá Creditinfo um málið segir að munurinn á milli ára muni þó felast í því að þetta árið flytjast hlutfallslega mun fleiri Íslendingar til útlanda í samanburði við árið í fyrra því þá voru 64% brottfluttra einstaklingar sem eru af erlendu bergi brotin. Að því gefnu að þróun brottflutninga verði óbreytt út árið 2009 má því gera ráð fyrir að heildarfjöldi einstaklinga sem flytjast úr landi verði ríflega 9 þúsund manns og þar af verði íslenskir ríkisborgarar um helmingur. Flestir einstaklingar með erlent ríkisfang hafa flust til Póllands. Ef aðeins eru skoðuð þau lönd sem Íslendingar eru að flytjast til má sjá að þar eru Norðurlöndin vinsælust. Flestir hafa þá farið til Danmerkur, næstflestir til Noregs en í þriðja sæti er Svíþjóð. Hér er athyglisverðast að sjá aukningu flutninga til Noregs en þangað hafa nú þegar 1.042 einstaklingar flutt á árinu til samanburðar við 278 talsins allt árið í fyrra. Á fyrstu 9 mánuðum ársins jukust því flutningar Íslendinga til Noregs um 275%. Creditinfo mælir sýnilegar afleiður fjárhagserfiðleika og brottflutninga úr landi og á það sérstaklega við um þau tilvik þar sem flutningar eru í kjölfar atvinnumissis. Creditinfo hefur þó ekki upplýsingar um hve margir af þeim sem flust hafa úr landi eru skráðir á atvinnuleysiskrá hér.
Mest lesið Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Erlent Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Innlent Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Innlent Hin hliðin ljúgi að landsmönnum Innlent Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Innlent Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Innlent Ráðuneytið birtir útreikningana Innlent Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Innlent Fleiri fréttir Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Hin hliðin ljúgi að landsmönnum „Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Ráðuneytið birtir útreikningana Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Óvissustigi í Öskju aflýst Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Verðhækkanir hjá Reykjavíkurborg og Kristrún á fundaferðalagi Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði Stolinn bíll fannst úti í á Vilja bæta umferðarflæði með hraðari snjallljósavæðingu Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Sjá meira