Býst við fleiri svínaflensutilfellum hér á landi Höskuldur Kári Schram skrifar 23. maí 2009 18:30
Fyrsta tilfelli H1N1-flensu, svokallaðri svínaflensu, hefur verið staðfest hér á landi. Sóttvarnalæknir gerir fastlega ráð fyrir að fjöldi Íslendinga greinist með flensuna á næstu vikum og mánuðum. Smitið barst hingað frá Bandaríkjunum og beðið er niðurstöðu rannsókna á fjórum einstaklingum til vibótar. Maðurinn sem greindist með svínainflúensu er sextíu ára gamall en hann kom frá New York í Bandaríkjunum í síðustu viku. „Hann kemur hérna fyrir helgina og er alveg einkennalaus á leiðinni og dagana á eftir. Hann veikist svo í þessari viku en við erum nokuð vissir um að hann hafi ekki verið að smita neinn á leiðinni, hvorki í flugvél né flughöfn," segir Haraldur Briem sóttvarnarlæknir. Grunur leikur á að maðurinn hafi smitað að minnsta kosti fjóra einstaklinga , þar á meðal eiginkona sína og börn. Þá hefur fólk sem hefur umgengist manninn undanfarna daga verið beðið um að leita til læknis. Viðkomandi tilfelli eru á höfuðborgasvæðinu og á Suðurlandi. Hvernig líður þessum manni í dag? „Honum er að batna og fer skánandi þannig að þetta er allt að ganga yfir," segir Haraldur. Það sama um fjölkyldu hans? „Við ætlum það. Nú er bara verið að kanna það mál og við vitum ekkert af því að með vissu að einhver sé með inflúensulík einkenni en það kemur bara í ljós og er verið að skoða." Á fundi sóttvarnalæknis og almannavarnardeildar í morgun var ákveðið að lýsa ekki yfir neyðarstigi að svo komnu máli. Fólkið hefur ekki verið sett í sóttkví heldur beðið um að halda sig heima. „Það er vegna þess að veikin er mjög væg og við teljum ekki ástæðu til þess að grípa til strangra aðgerða." Haraldur býst faslega við því að fleiri eigi eftir að greinast með H1N1 veiruna á næstunni. „Já það muni gerast hér eins og annars staðar. Hann breiðist út og við fáum þá líklega sumarinflúensu eða júníinflúensu. Það er ekkert ólíklegt. Það væri með ólíkindum ef við myndum finna öll tilfelli sem eru að koma til landsins og smita út frá sér, því mörg þeirra eru með væg einkenni og ekki eins og augljóst og þetta." Þannig að þú reiknar fastlega að það séu fleiri smitaðir og það muni fleiri smitast á næstu vikum og mánuðum? „Já ég reikna fastlega með því."
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Marius látinn laus Erlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Fleiri fréttir „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi Sjá meira